Huggun Heimspekinnar
15.05.2007 12:12:50 / gauti

Kínversk heimspeki sem samanburðarheimspeki

Dr. Chung-ying Cheng, prófessor í heimspeki við University of Hawaii, heldur fyrirlestur á vegum Félags áhugamanna um heimspeki á komandi fimmtudag (uppstigningardag) 17.maí 2007 í húsnæði Reykjavíkur Akademíunnar við Hringbraut 121, 107 Reykjavík.   Fyrirlesturinn hefst kl 20:30 í fundarsal Akademíunnar  "Kínversk heimspeki sem samanburðarheimspeki"  Hvernig berum við saman vestræna og kínverska heimspeki og hver er ávinningurinn? Chung-ying Cheng segir þessar hefðir einbeita sér að ólíkum víddum veruleikans. Þannig er vestræn heimspeki öðru fremur aðferðafræðileg - hún einkennist af viðvarandi viðleitni til að setja fram betri og fágaðri aðferðir. Kínversk heimspeki hneigist hins vegar til að einbeita sér að sjálfri tilvistinni og leitast við að samþætta fremur en sundurgreina. Nú tilheyra aðferð og tilvist vissulega sama raunveruleika. Með því að beita á þau kínverskri yin-yang díalektík sem miðar að samræmi (og er andstæð vestrænni díalektík sem felst í átökum) má knýja fram nýjar hliðar á gagnkvæmum skilningi hefðanna. Í slíkum skilning felst ekki einungis að upprunalegar andstæður fá að viðhalda sér óbreyttar, heldur birtast þær í stöðugt breytilegum tjáningarformum. Eins og sígildir kínverskir heimspekingar leggur Cheng einnig ríka áherslu á athöfnina; þekking án athafnar er gagnslaus þekking. Þannig hefur Cheng þróað heimspeki sína - sem hann nefnir verufræðilega túlkunarfræði (onto-hermeneutics) - í átt til hagnýttrar stjórnsýsluheimspeki sem jafnt fyrirtæki sem ríkisstjórnir gætu nýtt sér. Þetta framtak hefur vakið mikla athygli, ekki aðeins í Austur-Asíu, heldur hefur bandaríska samskiptatækjafyrirtækið AT&T sýnt því mikinn áhuga.  Dr. Chung-ying Cheng er prófessor í heimspeki við University of Hawaii at Manoa í Bandaríkjunum. Í gegnum árin hefur hann öðru fremur einbeitt sér að kínverskri heimspeki, jafnt til forna sem í samtímanum, og samanburði hennar við vestræna heimspeki. Í námi sínu við Harvard lagði hann þó áherslu á rökgreiningarheimspeki, málspeki og rökfræði sem alla tíð hafa haft mikil áhrif á heimspekilegar nálganir hans.  Cheng er stofnandi og fyrrum formaður International Society of Chinese Philosophy, sem staðið hefur fyrir viðamiklum ráðstefnum um kínverska heimspeki í gegnum árin. Einnig setti hann á stofn og stýrir International Society for Yijing Studies. Hann hefur verið ritstjóri hins virta tímarits Journal of Chinese Philosophy síðan það hóf starfsemi sína árið 1972. Hann er heiðursprófessor við Austurlandastofnun Rússnesku vísindaakademíunnar. Eftir Cheng liggja 15 bækur og meira en 150 greinar um vestræna og kínverska heimspeki, sem og samanburðarheimspeki.  Sjá einnighttp://vefir.unak.is/kinverska/events.htm 

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 21:20:20 / gauti

Huggunin hefst á ný - mið 8.11.06 á Barnum

Sælir heimspekingar

Þið getið tekið gleði ykkar á ný í skammdeginu.

Huggunin er að byrja aftur

 

 



Fyrst huggun vertíðarinnar verður á

Miðvikudaginn 8. nóvember 2006

kl 21:00 á Barnum (Gamli 22), eftstu hæð (þ.e. 3 hæð)

 

 



frummælandi kvöldsins verður Róbert Jack og ætlar hann að kynna nýútkomna bók sína “Hversdagsheimspeki”

 

 



 

 Allir velkomnir - enginn aðgangseyrir




» 0 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 21:15:09 / gauti

Huggunin hefst á ný - mið 8.11.06 á Barnum

Sælir heimspekingar

Þið getið tekið gleði ykkar á ný í skammdeginu.

Huggunin er að byrja aftur

 

 



Fyrst huggun vertíðarinnar verður á

Miðvikudaginn 8. nóvember 2006

kl 21:00 á Barnum (Gamli 22), eftstu hæð (þ.e. 3 hæð)

 

 



frummælandi kvöldsins verður Róbert Jack og ætlar hann að kynna nýútkomna bók sína “Hversdagsheimspeki”

 

 



 

 Allir velkomnir - enginn aðgangseyrir




» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 14:16:39 / gauti

Hugur 17. árgangur (2005) kominn út

Sælir heimspekingar

Lítið hefur farið fyrir huggun heimspekinnar síðustu mánuði, en heimspekin heldur áfram að krauma undir yfirborðinu. Fyrir rúmu ári yfirtók huggun heimspekinnar Félag áhugamanna um heimspeki þegar ég var kjörinn formaður þess félags. Núna á hverri stundu kemur í búðir tímarit FÁH, Hugur – Tímarit um heimspeki, 17. árgangur (2005) í ritstjórn Björns Þorsteinssonar. Einnig stöndum við í miklu “markaðsátaki” sem felst fyrst og fremst í því að senda eintak til allra sem einhverntímann hafa einhvernveginn tengst félaginu í þeirri von að þeir sjá að um veglegt og metnaðarfullt rit er að ræða og gerist áskrifendur. Nú eru þeir sem mætt hafa á huggun heimspekinnar meintir heimspekiáhuga menn og því tel ég rétt að athuga hvort þið hafið áhuga á að gerast áskrifendur, ef þið eruð það ekki fyrir.

 

 



Ef þið viljið gerast áskrifendur sendið mér línu með nafni, kennitölu og heimilisfangi og ég skal senda ykkur Hug.

 

 



Áskriftargjald til félagsmanna 2500 kr, verð út úr búð 3000 kr.

 

 



Um FÁH:

http://www.heimspeki.hi.is/?fah

 

 



Efnisyfirlit:

http://www.heimspeki.hi.is/?fah/efnisyfirlit2005

 

 



Inngangur ritstjóra:

http://www.heimspeki.hi.is/?fah/inngangur2005

 

 



Kær hitabylgjukveðja

Pétur Gauti


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 17:13:31 / gauti

Fyrirbærafræðiþing

Kæru heimspekingar, meðfylgjandi er dagskrá ráðstefnu norrænu fyrirbærafræðisamtakanna sem verður haldin dagana 21. -23. apríl hér í Háskóla Íslands. Ráðstefnan er öllum opin og veita fyrirlestrarnir innsýn í vaxandi hefð fyrirbærafræði á Norðulöndum. Vinsamlegast áframsendið þessa tilkynningu á áhugasama. Sjá dagskrá: http://www.helsinki.fi/filosofia/nsp/

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 20:11:48 / gauti

Frjáls tími

Sælir heimspekingar

Huggunin heldur áfram á nýju ári og verður næsta huggun verður á 

fimmtudaginn 2.feb. 2006

og að venju á The Celtic Cross (Hverfisgötu 26), bakherbergi.

Salurinn opnar 20:30 og þetta hefst kl 21:00 stundvíslega

Enginn frummælandi verður að þessu sinni en huggunin lætur það ekki á sig fá og ræðum vítt og breitt um landsins gagn og nauðsynjar.

Ef ykkur brennur eitthvað á hjarta þá er þetta vettvangurinn.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.01.2006 01:09:50 / gauti

Huggun 5.1.06

Sælir heimspekingar

Huggunin heldur áfram á nýju ári og verður næsta huggun verður á fimmtudaginn 5.1.2006

og að venju á The Celtic Cross (Hverfisgötu 26), bakherbergi.

Salurinn opnar 20:30 og þetta hefst kl 21:00 stundvíslega

Frummælandi verður Viðar Þorsteinsson, um efni sjá hér að neðan.

Hlakka til að sjá sem flesta.

Kær kveðja

Pétur Gauti

Sjá einnig: http://www.blog.central.is/huggun/

*****

Frá Viðari um hvað er til umræðu:

 

 



þetta er sumsé efni lokaritgerðar minnar til MA-prófs frá Warwick-háskóla á árinu sem leið, en hún nefndist "Genealogy in Nietzsche and the Dialectic of Enlightenment". Í henni fjallaði ég um hvernig Theodor Adorno og Max Horkheimer notast við sifjafræði Nietzsches (einkum með vísun til Sifjafræði siðferðisins) í rannskókn sinni á díalektík upplýsingarinnar í samnefndu riti sem þeir skrifuðu í seinni heimsstyrjöldinni. Ég setti ritgerðina að nokkru leyti fram sem svar við gagnrýni Habermas á Nietzsche, Adorno, Horkheimer og Foucault sem kom fram í greininni "The Entwinement of Myth and Enlightenment – Re-Reading Dialectic of Enlightenment," frá árinu 1982. Í greinninni má segja að Habermas geri upp sakirnar við forfeður sína innan Frankfurtarskólans, þá Adorno og Horkheimer, og á sama tíma dregur hann í efa gildi Nietzsches fyrir gagnrýnin fræði almennt. Ég held því fram að skilningur Habermas á hlutverki sifjafræðinnar í verki Adorno og Horkheimers sé of þröngur. Á sama tíma reyni ég að skýra hvers vegna gagnrýni Habermas bítur hvorki á Nietzsche, Adorno né Horkheimer, þótt af ólíkum ástæðum sé.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 18:40:16 / gauti

Nánar um huggun á morgun

Valur sendi mér þetta skeyti um það sem hann ætlar að fjalla um:

Ég mun fjalla um frásagnarhugtakið eins og það hefur notað síðustu árin í tveimur óskyldum greinum heimspekinnar, annars vegar heimspeki hugfræðinnar og hins vegar heimspeki heilbrigðisvísinda, í þeim tilgangi að rekja vanda þessa hugtaks eins og það hefur verið notað þar, og benda á þörfina að grundvalla slíkt í hugtak í rammgerðari heimspekirannsókn útfrá fyrirbærafræðinni og félagssögulega gagnrýni á hana. Slíka rannsókn er að finna hjá Ricoeur í þrekvirki hans Temps et recit - Tími og Saga. Þar reynir Ricoeur að spenna greinar utanum fyrirbærafræði tímans, söguvitund rögreiningarheimspeki sem og díalektískrar hefðar, svo ekki sé minnst á túlkunarfræði, frá Dilthey til Heidegger til Gadamer og Ricoeurs. Allt miðast þetta að því mæta þverstæðu hins innra tíman eins og Ágústínus var fyrstur manna til að benda á. Ricoeur teflir saman Ágústínusi og skáldskaparfræði Aristótelesar til að leggja grunninn að tesu sinni sem er sú 1) að sundurlaus tími mannsins er aðeins merkingarbær eins og hann er miðlaður í frásögn og 2)sagan(narratíf)verði aðeins skilin til fullnustu sem athöfn sprottin af þessari þverstæðu tímans. Ég mun reyna gera grein fyrir hvernig Ricoeur réttlæti þessa hringsemd og hvaða erindi endurskoðað frásagnarhugtak hafi við samtímaheimspeki. Heimspekingar sem koma við sögu eru Daniel Dennett, Ricoeur, Butler, Agústínus, Aristóteles, Husserl, Hegel og Heidegger.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.12.2005 20:06:34 / gauti

Næsta huggun, fim 8.12 - Valur Brynjar Antonsson

Sælir heimspekingar

Næsta huggun heimspekinnar verður fim 8.12.

Framsögumaður Valur Brynjar Antonsson

Umræðuefni: frásagnarhugtakið í 20.aldar heimspeki.

Að venju á Celtic Cross, kl 20:30

Nánari upplýsingar á morgun


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.10.2005 23:27:46 / gauti

Fim 3.11. - Hjörleifur Finnson

Næsta huggun verður á fimmtudaginn 3.11.05 og að venju á The Celtic Cross (Hverfisgötu 26), bakherbergi.

Salurinn opnar 20:30 og þetta hefst kl 21:00 stundvíslega

 

Framsögumaður kvöldsins verður Hjörleifur Finnsson og efnið verður úr síðustu grein sem hann birti í Nýhil bókinni af ljóðum "'óbærileg stöðnun" sem fjallar um sköpun og listir út frá breyttum framleiðsluháttum í nútíma og eftirnútíma.

 

 



 

 



Hlakka til að sjá sem flesta.

Kær kveðja

Pétur Gauti


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.10.2005 11:00:06 / gauti

Næsta huggun - fim 6.10.05

Sælir heimspekingar.

Huggun heimspekinnar er að fara að hefjast aftur.

Næsta huggun verður á fimmtudaginn 6.10.2005 og að venju á The Celtic Cross (Hverfisgötu 26), bakherbergi. Salurinn opnar 20:30 og þetta hefst kl 21:00 stundvíslega

Framsögumaður kvöldsins verður Kristín Sætran og fjallar um heimspeki í framhaldsskólum.

Hlakka til að sjá sem flesta.

Kær kveðja Pétur Gauti

Hérna er smá smátexti frá henni um sitt umræðuefni:

Ég mun fjalla um efni M.Paed. ritgerðar minnar sem ég lauk sl. vor, Tími heimspekinnar í framhaldsskólanum. Þar fjalla ég um mikilvægi og möguleika og í raun hljótt kall eftir heimspeki í þjóðfélaginu í dag, líka utan framhaldsskólanna. Ég kem meðal annars til með að reifa nokkra þætti ritgerðarinnar, þar sem ég svara andmælum um gildi heimspekinnar, hvernig mæta má námsmarkmiðum aðalnámskrárinnar í nokkrum fögum með heimspekinni, hvernig hægt er að mæta þörfum atvinnulífsins og einnig áhuga unga fólksins með heimspekinni og lýsi könnun á áhuga framhaldsskólakennara á að nýta heimspeki í kennslu sinni.

Eftir að ég hef farið yfir nokkra þætti ritgerðarinnar getum við vonandi rætt um framgagn heimspekinnar vítt og breitt.

Kær kveðja Kristín.


» 89 hafa sagt sína skoðun

20.09.2005 15:32:36 / gauti

Huggun fer að fara í gang

Sælt veri fólkið

Ég reikna með að huggun heimspekinnar fari fljótlega í gang aftur. Nánari fréttir af því fljótlega.

Fyrir þá sem þyrstir í heimspekilega umræðu þá er Róbert Jack aftur byrjaður með heimspekikaffihúsið. sjá www.blog.central.is/blekklessur


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.05.2005 20:58:43 / gauti

Helvíti er annað fólk

Næstu huggun heimspekinnar verður á næsta fimmtudag (2.6.05) og höldum við áfram að vera á The Celtic Cross (á horni Hverfisgötu og Smiðjustígs) og væntanlega í bakherberginu (Finnegan’s The Undertakers) nema ef það reynist of lítið og þá verðum við í kjallaranum.

 Húsið opnar kl. 20:30 og hefst þetta kl 21:00 stundvíslega.

Framsögumaður kvöldsins verður Jóhann Björnsson og ætlar hann að fjalla um Jean-Paul Sartre og mannleg samskipti. Sartre hefði orðið 100 ára 21. júní n.k. og því við hæfi að fjalla um hann. Á netinu er mikið um efni um Sartre, ágætis staður til að byrja að leita er á google: http://directory.google.com/Top/Society/Philosophy/Philosophers/S/Sartre,_Jean-Paul/ 

***

Smá frá Jóhanni um sínar fyrirætlanir á fimmtudagskvöldið:

Það sem ég ætla að gera er að hafa smá spjall um Jean-Paul Sartre og beina  athygli minni fyrst og fremst að hugmyndum hans um mannleg samskipti, en hann er þekktur fyrir setninguna góðu "Helvíti það er annað fólk." Hann skrifaði í bók sinni Veru og Neind alllangann og geysilega skemmtilegan kafla um mannleg samskipti og ælta ég fyrst og fremst að ræða þann hluta sem hefur með augnarráðið að gera. Þetta er heimspeki sem hefur með ósköp hversdagslega hluti að gera sem við öll upplifum og því mun ég leitast við að fjalla um þá á mannamáli og því ætti enginn að þurfa að detta út.

Sartre ræðir m.a. í þessum kafla hvað það er sem gerist þegar aðrir horfa á mann, hversvegna skammast maður sín og hversvegna roðnar maður og hvað gerist þegar maður er nappaður við að gera eitthvað skammarlegt af sér eins og að gægjast í gegnum skrárgat. Ýmsir svona hlutir verða ræddir og er ekki úr vegi að reyna að tengja þá við okkar eigin hversdagslegu reynslu sem kostur er. Ef tími vinnst til getum við tekið smá sveigju yfir í Merleau-Ponty um mannleg samskipti úr bók hans Fyrirbærafræði skynjunar en það áhugavert að lesa þessar tvær bækur þeas Veru og Neind eftir Sartre og Fyrirbærafræði skynjunar eftir Merleau-Ponty saman. Við sjáum til hvernig það þróast. Svo er ekki ólíklegt að klassískar hetjur heimsbókmenntanna eins og Róbinson Krúsó og Palli sem var einn í heiminum komi til með að heiðra okkur með nærveru sinni enda einstaklega existensíalískir karakterar.

Jóhann Björnss on

BA prófi lokið frá HÍ 1992 (lokaritgerð um sjálfsvíg útfrá tilvistarspekilegum pælingum)

MA próf frá Katholieke Universiteit Leuven í Belgíu 1995 (lokaritgerð um Sartre og Merleau-Ponty um mannleg samskipti).

Starfa sem kennari í Réttarholtsskóla og kenni ýmislegt eins og heimspeki, samfélagsgreinar, frönsku, leikfimi og stundum sund fyrir vatnshrædda auk þess að kenna unglingum í alvarlegum hegðunar og tilfinningavanda (mjög existensíalískt viðfangsefni).

Sé einnig um fræðslumál fyrir félagið Siðmennt sem stendur fyrir og veitir ráðgjöf um borgaralegar athafnir.

 

 




» 1 hafa sagt sína skoðun

22.05.2005 16:31:01 / gauti

A priori og A posteriori

Fann ljóð um þá getgátu að risaeðlur hefðu verið með tvo heila, einn í hausnum og annann við afturendann. Sjá einnig grein á The Straight Dope (http://www.straightdope.com/classics/a2_003)

The Riddle of the Dinosaur eftir Bert Taylor blaðamann á The Chicago Tribune (1912)


Behold the mighty dinosaur
Famous in prehistoric lore,
Not only for his power and strength
But for his intellectual length.
You will observe by these remains
The creature had two sets of brains--
One in his head (the usual place),
The other in his spinal base.
Thus he could reason "A priori"
As well as "A posteriori."
No problem bothered him a bit
He made both head and tail of it.
So wise was he, so wise and solemn,
Each thought filled just a spinal column.
If one brain found the pressure strong
It passed a few ideas along.
If something slipped his forward mind
'Twas rescued by the one behind.
And if in error he was caught
He had a saving afterthought.
As he thought twice before he spoke
He had no judgment to revoke.
Thus he could think without congestion
Upon both sides of every question.
Oh, gaze upon this model beast;
Defunct ten million years at least.



» 0 hafa sagt sína skoðun

21.05.2005 13:38:13 / gauti

Paul Ricoeur látinn

Paul Ricoeur lést í dag, 92 ára að aldri. Sjá grein á mbl.is - http://www.mbl.is/mm/frettir/togt/frett.html?nid=1139585

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2